Skip to content
Nordica Spa | Skilmálar
Skilmálar

Bókanir
Bóka þarf meðferðir fyrirfram til að tryggja þann tíma og dag sem þú óskar eftir. Viðskiptavinir þurfa að láta kreditkortarnúmer, gjafakortanúmer eða herbergisnúmer (fyrir þá sem dvelja á hótelinu) til að tryggja bókunina. Hægt er að greiða meðferðir á annan máta sé óskað eftir því.

Reglur um afbókanir
Vegna mikillar aðsóknar í heilsulind NordicaSpa þurfa gestir að afbóka meðferðir með sólarhrings fyrirvara. Ef afbókað er með minni fyrirvara eða gestir mæta ekki þá verður greiðsla tekin fyrir meðferðina.

Hverju á að klæðast í meðferð?
Innifalið í öllum meðferðum er handklæði og sloppur. Búningsherbergi eru með læstum skápum þar sem hægt er að geyma föt og aðra muni. Við mælum með að gestir séu annað hvort á nærbuxum eða berir í nuddi eftir því hvað hverjum og einum finnst þægilegra. Ekki er mælt með að gestir klæðist blautum sundfötum í meðferðum. NordicaSpa getur útvegað einnota nærbuxur sé þess óskað. Líkaminn er ávalt hulinn að hluta til í öllum meðferðum með laki og teppi.

Verðmæti
Við mælum ekki með því að gestir séu með skartgripi eða önnur verðmæti á sér í meðferðunum og setji ekki verðmæti í vasana á sloppunum því það getur gleymst þar. NordicaSpa ber ekki ábyrgð á verðmætum sem hugsanlega gætu glatast í heilsulindinni.

 

Login Form



Nordica-Superform

lesmills