Skip to content
Nordica Spa
Les Mills Tímar

bodypump

Fljótlegasta leið í heimi til að komast í form.

Einfaldlega vinsælasti hóptími í heiminum fyrr og síðar.  BODYPUMP er sannarlega byltingarkenndur hóptími þar sem lóð og stangir eru notaðar til þess að styrkja og tóna hvern einasta vöðva líkamans.  Í þessum tímum nýturðu alla kosti þess að þjálfa líkamann með lóðum í skemmtilegu andrúmslofti fullu af orku og hvatningu.

BODYPUMP er bæði fyrir konur og karla og í hann geta allir farið, byrjendur sem og þeir sem lengra eru komnir.  Engin hopp eða högg á líkamann, aðeins hörkuátök, léttar stangir með lóðum sem auðvelt er að breyta á þyngdum.  Unnið er með alla stóru vöðvahópana.

" Þú myndir aldrei taka svona vel á því í tækjasalnum"

 

balance

Í átt að jafnvægi.

BODYBALANCE tengir líkama og sál og mun breyta þeirri tilfinningu sem þú hefur á líkama þínum til framtíðar.

Líflegur tími þar sem þjálfað er eftir tónlist sem skilar þátttakendum afslöppuðum og endurnærðum.  BODYBALANCE blandar saman því besta úr austurlenskri þjálfun eins og yoga og tai chi með nýjum æfingum eins og pilates og feldenkrais.

Virk öndun, einbeiting og vandlega útfærðar teygjur, hreyfingar, stöður byggðar upp  á andlegum tíma framkalla aukið samræmi og jafnvægi líkama og sálar.

BODYBALANCE er styrkjandi og tónar vöðva líkamans auk þess að losa um stífa og auma vöðva.  Þú munt standa beinni, finnast sterkari, verða liðugri auk þessa að verða meðvitaðri bæði andlega og líkamlega.

Tíminn hentar öllum og við mælum sérstaklega með BODYBALANCE fyrir þá sem vilja losa um stífa vöðva, stress og streytu sem leggjast í auknum mæli á einstaklinga.  Vinna þannig gegn slæmum fylgifiskum nútíma lifnaðarhátta.

“Farðu í BODYBALANCE ef þú villt slá tvær flugur í einu höggi – þjálfa líkama og sál”

 

rpm

Velkomin í kaloríubrennslu

Viljirðu brenna kaloríum hratt, þá er RPM tíminn fyrir þig – mesti brennslutími sem völ er á.

Skemmtilegur og sportlegur þolþjálfunartími sem eyðir kaloríum á met hraða – upp í  900 í einum tíma!  Þú upplifir hópefli og hjólar eftir bestu hjólakerfum sem búið er að setja saman í takt við skemmtilega og uppörvandi tónlist.  Þessi tími er stundum kallaður “Rokktónleikar á hjólum”

RPM eykur fljótt úthald þátttakenda og styrkir sérstaklega vöðva í neðri hluta líkamans.  “Afstressun” er þó einn af stóru kostum RPM tímanna.

“Það skiptir ekki máli á hvaða hraða þú ert að hjóla, þú nærð árangri bara á að vera á staðnum”

 

 

 

Nordica-Superform

lesmills