Skip to content
Nordica Spa | Andlitsmeðferðir
Andlitmeðferðir

Eldur og Ís steina andlitsbað
Einstök lúxusmeðferð þar sem notaðir eru heitir og kaldir steinar. Andlitið er yfirborðs -og djúphreinsað. Andlit, herðar og bringa eru nuddaðar með heitri olíu og heitum steinum í kjölfarið. Maski sérblandaður eftir húðgerð og borinn á. Kaldir steinar hvíla á augum til að draga úr bólgum og þreytu í kringum augu. Á meðan er eru hendur og fætur nuddaðir með heitri olíu og heitum steinum. Einstaklega slakandi lúxusmeðferð. 80 mín. 11.990

Lúxus andlitsmeðferð
Slakandi andlitsmeðferð sem hreinsar og endurnærir húðina. Andlitið er yfirborðs -og djúphreinsað með annað hvort andlitsskrúbbi, gufu eða hitaljósi. Andlit og herðar eru nuddaðar. Krem og maski borinn á eftir húðgerð. Boðið er upp á bak –og handnudd. Parafín –eða rakamaski er settur á hendur. Plokkun er innifalin. 75 mín. 10.990.-

Klassísk andlitsmeðferð með húðhreinsun
Andlitsmeðferð sem hreinsar og endurnærir húðina. Áhersla er lögð á hreinsun húðarinnar. Andlitið er yfirborðs -og djúphreinsað með annað hvort andlitsskrúbbi, gufu eða hitaljósi og húðin hreinsuð eftir þörfum. Andlit og herðar eru nuddaðar. Krem og maski borinn á eftir húðgerð. Augnbrúnaplokkun er innifalin. 75 mín. 11.900.-

Klassísk andlitsmeðferð
Slakandi andlitsmeðferð sem hreinsar og endurnærir húðina. Andlitið er yfirborðs -og djúphreinsað með annað hvort andlitsskrúbbi, gufu eða hitaljósi. Andlit og herðar eru nuddaðar. Krem og maski borinn á eftir húðgerð. Augnbrúnaplokkun er innifalin. 60 mín. 8.990.-

Endurnærandi og styrkjandi andlitsmeðferð
Meðferð fyrir þroskaða húð, unnið að því fjarlægja dauðar húðfrumur og virkja frumustarfsemina ásamt því að styrkja vöðva sem eiga til að slakna með aldrinum. Andlitið er yfirborðs -og djúphreinsað með annað hvort andlitsskrúbbi, gufu eða hitaljósi. Andlit og herðar eru nuddaðar. Krem og maski borinn á eftir húðgerð. 75 mín. 11.900.-

Smábað (Mini-facial)
Stutt útgáfa af andlitsbaði. Andlitið er yfirborðs -og djúphreinsað með annað hvort andlitsskrúbbi, gufu eða hitaljósi. Andlit er nuddað og maski settur á. 30 mín. 6.990.-

Húðhreinsun
Áhersla er lögð á hreinsun húðarinnar. Andlitið er yfirborðs -og djúphreinsað með annað hvort andlitsskrúbbi, gufu eða hitaljósi. Notað er krem og maski eftir húðgerð. 60 mín. 7.990.-

Augnmaskameðferð
Endurnærandi meðferð fyrir augnsvæðið. Andlitið er yfirborðshreinsað, augnsvæði og varir djúphreinsað. Augnsvæði er nuddað og notaður maski sem dregur úr bólgum og baugum. Góð viðbót við andlitsbað eða eitt og sér. 30 mín. 4.990.-

Herra andlitsbað
Sérsniðin andlitsmeðferð fyrir herra þar sem herralína Clarins er notuð. Andlitið er yfirborðshreinsað og djúphreinsað með annað hvort andlitsskrúbbi, gufu eða hitaljósi. Andlit og herðar eru nuddaðar. Krem og maski borinn á eftir húðgerð. 60 mín. 6.990.-

Bókanir í síma 444-5090 eða Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 
Borði