Skip to content
Nordica Spa | Brúðhjónadekur
Upplifun 11 – brúðhjónadekur

Eldur & ís steinanudd 50 mín fyrir bæði, klassískt andlitsbað fyrir hana og herra andlitsbað fyrir hann – 36.700

Lúxus dekur fyrir brúðhjónin. Steinanudd er ein af sérmeðferðum NordicaSpa og er leið til djúprar slökunar. Notaðir eru upphitaðir, mjúkir íslenskir steinar og kaldur, hvítur marmari. Steinunum er nuddað mjúklega um líkamann um leið og olían er borin á. Steinanuddið örvar blóðrásina og efnaskiptin um leið og það dregur úr bólgum, spennu og verkjum. Sambland þrýstings, hita og kælingar gerir þessa meðferð afar áhrifaríka. Ásamt djúpri slökun verður húðin silkimjúk Slakandi andlitsmeðferð sem hreinsar og endurnærir húðina.
Andlitið er yfirborðs -og djúphreinsað. Andlit og herðar eru nuddaðar. Krem og maski borinn á eftir húðgerð. Augnbrúnaplokkun er innifalin. Sérsniðin andlitsmeðferð fyrir herra þar sem herralína Clarins er notuð. Andlitið er yfirborð -og djúphreinsað með annað hvort andlitsskrúbbi, gufu eða hitaljósi. Andlitið er nuddað og borið á krem og maski eftir húðgerð.

 
Borði