Skip to content
Nordica Spa | Eldfjallameðferð
Eldfjallameðferð

Orka úr íslenskri náttúru

Einstök meðferð þar sem þreytan líður úr þér og líkaminn endurnærist. Náttúrulegum hveraleir er nuddað á líkamann og honum síðan pakkað inn til að hvílast. Leirinn dregur í sig eiturefni úr líkamanum og hefur mjög kælandi og slakandi áhrif. Á meðan er boðið upp á slakandi svæðanudd á fótum. Leirinn er þveginn af í sturtu og í kjölfarið er djúpt nudd í 40 mín þar sem unnið er á þrýstipunktum. Til að hámarka áhrifin er í  lok meðferðar boðið upp á hreinsandi te. Leirinn, olían og teið í þessari meðferð er allt unnið úr íslenskum náttúruafurðum. 80 mín 13.990.

 

 
Borði