Skip to content
Nordica Spa | Fiðrildið
Fiðrildið - fislétt og ilmandi upplifun

Í þessari slakandi meðferð er notuð sérstök blanda af ilmkjarnaolíunum myrru, appelsínu og austurlenskri rós sem mýkja húðina, skapa jafnvægi í líkamanum og veita djúpa slökun. Heitri olíu er dreypt á líkamann og er hann síðan nuddaður með léttum hreyfingum. Heitum púðum með pressuðum jurtum er svo komið fyrir víða um líkamann til að draga úr bólgum og örva hreinsun hans. Síðan er sérstöku nuddi beitt til að losa um spennu í baki og með djúpri öndun slakar þú enn betur á. Meðferðin veitir þér djúpa slökun og þú ert léttari á fæti með silkimjúka húð að henni lokinni.
50 mín. 9.990 / 80 mín. 11.990.

 

 
Borði