Skip to content
Nordica Spa | Golffitness
Golffitness

Golffitness er hannað með það í huga að gera líkamann kraftmeiri, sveigjanlegri og í betra jafnvægi svo golfsveiflan þín nái nýjum hæðum. Golf-fitness er fyrir alla golfara sem vilja bæta leikinn sinn og er sérhannað fyrir ALLA golfara af fremsta fagfólki golfíþróttarinnar.

Leið 1 – Golffitness líkamsþjálfun

  • 4 tímar á viku í NordicaSpa
  • 2 tímar í TPI æfingum með Gunnar Má Tpi level 3 kennara

Þetta eru lokaðir hóptímar þar sem unnið er að auka þol og þrek ásamt styrktar og liðleika -æfingum í formi þrekhrings – Krefjandi og skemmtilegt prógramm sem hentar öllum. 

2 tímar í styrktarsal með þjálfara í hv
ert sinn er þú kemur
Styrking, liðleiki, jafnvægi og úthald alltaf undir leiðsögn þjálfara. Unnið að leiðréttingum ásamt auknum styrk og hreyfanleika – Sveiflan mun verða kraftmeiri og nákvæmari

  • Fyrirlestur – Ólafur Már, Brynjar og Gunni  - Golf – Tpi golffitness – Mataræði
  • Vikulegur fróðleikur – Upphitun, hugarþjálfun, æfingar, mataræðið o.fl
  • Heilsulind með heitum pottum, gufum, sauna og herðanudd eftir hvern tíma

Tímar í boði  Þri/fim fastir tímar - 8:30/11:00/16:30 mán/mið/fös á tíma sem henta þér frá 6:00 til 20:00

Verð 39.900.- kr

Leið 2 – Golffitness + Golfkennsla

  • 4 tímar á viku í NordicaSpa
  • 2 tímar í TPI æfingum með Gunnar Má Tpi level 3 kennara
  • 2 tímar í styrktarsal með þjálfara í hvert sinn er þú kemur
  • Video-sveiflugreiningar með golfkennara  Pro Golf í fyrstu viku
  • Hóptímarnir í golfkennslu eru einu sinni í viku í klukkustund í senn á viku 2,3 og 4
  • Fyrirlestur – Golf - TPI golffitness líkamsræktarkerfið - Mataræði - Videógreiningin - Golfkennslan
  • Vikulegur fróðleikur – Upphitun, hugarþjálfun, æfingar, mataræðið o.fl
  • Heilsulind með heitum pottum þar sem boðið er upp á herðanudd, 2 ilmgufur og sauna og heitur pottur á veröndinni

Tímar í TPI Golffitness hjá NordicaSpa Þri/fim fastir tímar - 8:30/11:00/16:30  

Golfkennslan fer fram í Básum á mánudögum og miðvikudögum

Verð 49.900.- kr

Næstu Golffitness námskeið hefjast 16. mars nk. - skráning hafin hjá This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it eða 444-5090.


TPI - Titleist Performance Institute býr yfir mestu þekkingu um golfíþróttina hvað varðar æfingar og heilsu í heiminum í dag. TPI er samsett af upplýsingum um golfíþróttina frá helstu sérfræðingum golfheimsins, hvort sem það eru golfkennarar, styrktarþjálfarar, sjúkraþjálfarar, læknar eða atvinnukylfingar.

TPI hefur hannað prógramm sem heitir TPI Golf-fitness sem gengur út á að bæta líkamlega hluta golfleiksins. Sveiflan verður aldrei betri en líkaminn leyfir svo ef þú ert að hlífa bakinu eða mjaðmirnar ná ekki að snúast nægjanlega mikið í sveiflunni bitnar það verulega á sveiflunni .

TPI byggir allt sitt prógramm á ítarlegum rannsóknum og  áratuga reynslu bestu golfkennara heimsins. Þeir eru í samstarfi við marga af helstu toppkylfingunum til þess að geta gert prógrammið það besta sinnar tegundar.

TPI prógrammið er nú kennt í fyrsta sinn á Íslandi og hefur Gunnar Már Sigfússon hjá NordicaSpa útskrifast með 3 stig (level 3) frá TPI sem gerir hann annan af tveimur í Skandinavíu með 3ja stigs réttindi. Gunnar Már hefur unnið við einkaþjálfun og líkamsrækt í yfir 14 ár og hefur gríðarlega reynslu af þjálfun og hafa fleiri þúsund Íslendingar notið góðs af því í gegnum árin. Gunnar Már og NordicaSpa eru í samstarfi við golfskólann ProGolf sem státar af besta tæknibúnaði sem völ er á við sveiflugreiningu. ProGolf rekur einnig æfingasvæðið Bása við Golfklúbb Reykjavíkur sem er stærsta og best búna æfingasvæði fyrir kylfinga á Íslandi. Ólafur Már Sigurðsson, skólastjóri Pro Golf, golfkennari  og afreksmaður í golfi mun koma að námskeiðinu í gegnum sveiflugreiningu og golfkennslu ásamt Brynjari Eldon Geirssyni sem er menntaður PGA golfkennari frá þýska PGA skólanum. Brynjar er íþróttastjóri GR og sér um afreksþjálfun klúbbsins.