| Upplifun 9 – mömmudekur |
|
Meðgöngunudd, spa fótsnyrting og smábað – 23.400 Algjört dekur fyrir verðandi -eða nýbakaðar mæður. Við bjóðum upp á sérstakan nuddbekk fyrir ófrískar konur. Í þessari meðferð er leitast við að mýkja vöðva verðandi móður ásamt því að draga úr spennu og þreytu og örva blóðrás. Smábað er stutt útgáfa af andlitsbaði. Andlitið er yfirborðs -og djúphreinsað. Andlit er nuddað og maski settur á. Fætur eru settar í vatn og þeir skrúbbaðir, neglur snyrtar, sigg tekið og naglabönd löguð. Maski er settur á fætur og þeir nuddaðir. Neglur lakkaðar ef óskað. |