| Endurnærandi saltskrúbb með þörungum |
|
Meðferð sem hreinsar, nærir og styrkir húðina. Meðferðin hefst á saltskrúbbi þar sem líkaminn er nuddaður upp úr einstakri blöndu af nátturulegu íslensku jarðsalti og þörungum. Þessi blanda er mjög rík af steinefnum og ensimum og hreinsar saltið burt dauðar húðfrumur og þörungarnir styrkja náttúrulegt varnarkerfi húðarinnar. Að saltskrúbbinu loknu er líkamanum pakkað inn og boðið upp á létt andlits –og höfuðnudd. Hreinsandi, nærandi og rakagefandi meðferð. 50 mín. 9.990. |