Skip to content
Nordica Spa | Nýtt hjá Nordica Spa | Nýtt spennandi námskeið. Velkomin í núið. Frá streitu til sáttar.
Nýtt spennandi námskeið. Velkomin í núið. Frá streitu til sáttar.

(Mindfulness –based Stress Reduction)

thumb-streita

Hefst 1. febrúar, 6 vikur 


Miðvikudagar í ráðstefnusal kl.17:45

Verð 29.900kr, Meðlimir 12.900kr

Leiðbeinendur: Margrét Bárðardóttir og Guðbjörg Daníelsdóttir sálfræðingar

 

Árvekni, stundum kallað gjörhygli, byggist á ævagömlum hugleiðsluaðferðum búddískrar sálfræði. Í nútíma árvekniþjálfun er tvinnað saman aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar og sálfræði austrænnar visku. Margar rannsóknir hafa sýnt fram á að árvekniþjálfun hefur jákvæð áhrif á almenna vellíðan, bætir heilsufar, dregur úr streitu, kvíða og depurð. Þjálfunin felst m.a. í því að læra að þekkja  hugsanir sínar, tilfinningar og það sem við finnum fyrir í líkamanum. Áherslan er á að læra að nema staðar „hér og nú“, láta af sjálfstýringu hugans og sættast betur við það sem er. Með fræðslu, stuttum hugleiðsluæfingum og annarri hugarþjálfun er markmiðið að öðlast meiri hugarró og njóta betur líðandi stundar.

 

1.tími

Kynning, hvað er árvekni/gjörhygli?

Rannsóknir um áhrif árvekniþjálfunar

Líkami og sál: ein órofa heild.

Hugsun, tilfinningar, hegðun, líkami

Árvekniæfing

2.tími

Hugleiðsluæfing

Að fara af  sjálfsstýringunni

Að borða með árvekni-rúsínuæfingin

Öndunarhugleiðsla fyrir huga og líkama

3.tími

Hugleiðsluæfing

Hlusta á líkamann

Líkamshugleiðsla

 gera eða vera (being mode/doing mode)

Úr viðjum vanans

4.tími

Hugleiðsluæfing

Tilfinningakerfin þrjú:

að rækta með sér samkennd og góðvild (compassion)

5.tími

Hugleiðsluæfing

Að vinna með erfiðar tilfinningar

Að sættast við það sem er

6.tími

Hugleiðsluæfing

Árvekni gagnvart mótlæti, verkjum eða veikindum

Árvekni í daglegu lífi

Margrét lærði sálfræði við Freie Universität í Berlín þar sem hún bjó og starfaði í 15 ár. Frá 1987 hefur hún unnið á geðsviði Landspítala Háskólasjúkrahúsi fyrir utan eitt ár sem hún dvaldi við nám og störf í hugrænni atferlismeðferð í Oxford. Þar kynntist hún einnig árvekni (e. mindfulness) og hefur lagt áherslu á notkun þess í lífi og starfi.  


Margrét starfar nú sem sálfræðingur á krabbameinsdeildum Landspítalans. Auk þess rekur hún eigin sálfræðistofu.

 

Guðbjörg lærði sálfræði við H.Í. og Boston College í Bandaríkjunum.  Hún hefur starfað undanfarin ár sem sálfræðingur á geðsviði Landspítala háskólasjúkrahúss.  Þar hefur hún m.a. stýrt kvíðanámskeiði þar sem áhersla er lögð á þjálfun í árvekni.  Einnig hefur hún kennt árvekni sem almenna leið til þess að ná betra jafnvægi og yfirvegun í hugsun og hegðun.


Guðbjörg rekur eigin sálfræðistofu samhliða starfi sínu á geðsviði LSH.

 

Viðtal við Margréti og Guðbjörgu, Bylgjan 31/01/12

http://www.visir.is/section/MEDIA98&fileid=CLP9075

 


 

 


 

NordicaSpa


Hilton Reykjavik Nordica
Suðurlandsbraut 2
108 Reykjavík
Sími 444 5090
Fax 444 5091

Opnunartími


Mánud.- fös.    06:00 - 20:00
Laugardaga     09:00 - 18:00
Sunnudaga       10:00 - 14:00

Nordica-Superform

lesmills